Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 8.2.2012
| 19:56
| Uppfært
20:36
Jóhann lagði upp mark í stórsigri
AZ Alkmaar vann í kvöld stórsigur á útivelli gegn ADO Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, 6:0, og komst með því að hlið PSV Eindhoven á toppnum.
Bæði lið hafa nú 42 stig eftir 20 leiki en Twente er á hælum þeirra með 39 stig eftir 19 leiki.
Jóhann Berg Guðmundsson kom inná sem varamaður hjá AZ á 68. mínútu og aðeins fimm mínútum síðar lagði hann upp fjórða mark liðsins í leiknum fyrir Maarten Martens. Charlison Benschop skoraði þrennu fyrir AZ í leiknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






