Ólíklegt að Edda leiki á Algarve
Útlit er fyrir að Edda Garðarsdóttir leiki ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í Algarve-bikarnum sem hefst í Portúgal 29. febrúar. Edda hefur glímt við meiðsli í hné síðan í haust og er ekki komin á fulla ferð með liði sínu í Svíþjóð, Örebro, enn sem komið er.
„Það er ólíklegt að Edda verði með en ég hef þó ekki útilokað hana ennþá,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari við Morgunblaðið í gær.
Edda er ein reyndasta knattspyrnukona landsins og sú næstleikjahæsta með landsliðinu frá upphafi. Hún á 89 landsleiki að baki en missti af öllum fjórum leikjum Íslands í undankeppni EM síðasta haust vegna meiðslanna.
Ísland mætir Þýskalandi, Svíþjóð og Kína í Algarve-bikarnum dagana 29. febrúar, 2. mars og 5. mars, og leikur síðan um sæti á mótinu 7. mars. Síðan mætir liðið Belgíu á útivelli 4. apríl, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í 3. riðli undankeppni Evrópumótsins.
Eins er óvissa með Dagnýju Brynjarsdóttur úr Val sem meiddist einnig á hné í haust. Sigurður sagði að hún hefði lagast mikið að undanförnu en ennþá væri óljóst hvort hún yrði heil í tæka tíð.






