Íþróttir
|
Fótbolti
| Morgunblaðið
| 8.2.2012
| 12:30
Real Madrid hefur öll tök á að slá met
Real Madrid hefur öll tök á að slá markametið í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Metið er í eigu Real Madrid sem skoraði 107 mörk tímabilið 1989-90. Liðið hefur til þessa skorað 71 mark og haldi það áfram á þeirri braut sem það hefur verið á mun það enda í 128 mörkum en Madridingar hafa skorað að meðaltali 3,38 mörk í leik.
Barcelona getur slegið met Real Madrid yfir flest mörk skoruð á heimavelli. Metið er 78 mörk en Börsungar hafa skorað 45 mörk á Camp Nou eða 4.09 mörk að meðaltali í leik. gummih@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






