Bayern kaupir Shaqiri

Xherdan Shaqiri fagnar marki gegn Dönum í Evrópukeppni 21-árs liðanna síðasta sumar. stækka

Xherdan Shaqiri fagnar marki gegn Dönum í Evrópukeppni 21-árs liðanna síðasta sumar. Reuters

Þýska knattspyrnufélagið Bayern München tilkynnti í dag að það hefði keypt Svisslendinginn efnilega Xherdan Shaqiri frá Basel og samið við hann til fjögurra ára.

„Það er afar ánægjulegt að okkur skuli hafa tekist að semja við Xherdan Shaqiri, einn efnilegasta knattspyrnumann Evrópu, sagði Christian Neringer, framkvæmdastjóri Bayern, í morgun.

„Xherdan mun styrkja lið okkar næsta vetur með klókindum sínum og leikni. Ég hef fylgst með honum nokkuð lengi og er viss um að hann getur orðið einn af lykilmönnum Bayern,“ sagði Jupp Heynckes, þjálfari Bayern.

Shaqiri er tvítugur miðjumaður, af albönsku bergi brotinn en fæddur í Júgóslavíu, flutti barnungur með foreldrum sínum til Basel og hefur verið í röðum félagsins frá 10 ára aldri. Hann hefur þegar leikið 17 A-landsleiki fyrir Sviss og þá vakti hann mikla athygli með svissneska liðinu í úrslitakeppni Evrópumóts 21-árs landsliðanna í Danmörku í sumar en þar fékk Sviss silfurverðlaun og vann m.a. Ísland 2:0.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is