Hoffenheim rak þjálfarann

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Hoffenheim. stækka

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Hoffenheim. Reuters

Þýska knattspyrnufélagið Hoffenheim rak í dag þjálfarann sinn, Holger Stanislawski, í kjölfarið á ósigri á heimavelli gegn B-deildarliðinu Greuter Fürth í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í gærkvöldi.

Gylfi Þór Sigurðsson er sem kunnugt er á mála hjá Hoffenheim en fékk fá tækifæri hjá Stanislawski fyrir áramótin og var lánaður til Swansea City í byrjun janúar. Stanislawski sagði í kjölfarið að Gylfi hefði ekki haft áhuga á að leika fyrir liðið og þau ummæli hans hafa vakið mikla athygli.

Hoffenheim hefur aðeins unnið einn af síðustu 10 leikjum sínum í þýsku 1. deildinni en þar er liðið um miðja deild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is