Hólmar Örn nýtti tækifærið vel
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Bochum í þýsku B-deildinni á laugardaginn.
Hólmar nýtti það vel en hann var víða nefndur sem besti leikmaður Bochum í þýskum fjölmiðlum og hann átti stóran þátt í sigurmarki liðsins gegn Hansa Rostock, 2:1.
Nikoloz Gelashvili skoraði markið þegar hann stýrði boltanum í netið eftir skot Hólmars, sem var óheppinn að skora ekki með skalla eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik.
Hólmar fékk tækifærið þar sem annar miðvarða liðsins var í leikbanni. „Ég býst við því að verða settur aftur á bekkinn, en þó veit maður aldrei. En þetta var virkilega gaman og nú veit þjálfarinn vonandi að hann getur treyst mér til að spila! Verst að ná ekki að skora, ég var í góðu færi en skallaði því miður beint á markmanninn,“ sagði Hólmar við Morgunblaðið í gær.
Á vef Bochum segir að Hólmar hafi verið sterkastur allra í liðinu í návígjum í leiknum, unnið 84 prósent þeirra, og í greiningu leiksins á vef deildarinnar kemur fram að Hólmar hafi oftast allra leikmanna á vellinum komið við boltann, 91 sinni, og átt 53 heppnaðar sendingar á samherja, af 62, næstflestar allra.
Hólmar, sem er 21 árs, kom til Bochum frá enska félaginu West Ham síðasta sumar en gat ekkert spilað framan af tímabilinu vegna meiðsla. Hann var í röðum West Ham í þrjú ár en var um skeið lánaður til Roeselare í efstu deild í Belgíu.
Bochum er í 9. sæti deildarinnar, af átján liðum, og siglir þar lygnan sjó eftir slæma byrjun á tímabilinu þar sem liðið var við botninn lengi vel. vs@mbl.is






