Kristján Örn hættur með landsliðinu
Kristján Örn Sigurðsson, varnarmaður norska knattspyrnuliðsins Hönefoss, hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér í íslenska landsliðið. Þetta staðfestir hann í viðtali við Fótbolta.net í dag.
„Maður fékk að spila marga rosalega flotta leiki gegn frábærum andstæðingum og því var þessi ákvörðun mjög erfið. En ég hugsaði þetta vel og komst að þessari niðurstöðu,“ segir Kristján í viðtalinu og tekur fram að ráðning á nýjum landsliðsþjálfara hafi ekkert með þessa ákvörðun að gera.
„Nei alls ekki, ég tek þessa ákvörðun bara með sjálfan mig í huga. Mér finnst rétti tímapunkturinn á að ég einbeiti mér að félagsliði mínu og fjölskyldu. Ég spilaði marga landsleiki og er mjög ánægður með feril minn þar. Þetta var spurning um að hætta núna eða taka tvö ár í viðbót, klára næsta mót. Á endanum var það niðurstaðan að hætta núna,“ segir Kristján ennfremur.
Kristján er 31 árs og hefur spilað 53 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim fjögur mörk. Hann hefur verið fastamaður í liðinu undanfarin ár.






