Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 9.2.2012
| 18:39
Steinþór og Aron skoruðu
Knattspyrnumennirnir Steinþór Freyr Þorsteinsson og Aron Jóhannsson skoruðu fyrir félög sín í Noregi og Danmörku í dag en þau unnu bæði sigra í æfingaleikjum.
Steinþór skoraði fyrir norska úrvalsdeildarliðið Sandnes Ulf sem vann C-deildarliðið Randaberg 6:0 í Noregi. Steinþór lagði jafnframt upp mark fyrir fyrrum Grindvíkinginn Gilles Mbang Ondo sem kom til liðs við Sandnes Ulf frá Stabæk í vetur.
Aron Jóhannsson skoraði síðara mark danska úrvalsdeildarliðsins AGF sem vann B-deildarliðið Hjörring, 2:0.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






