Babbel ráðinn þjálfari Hoffenheim

Gylfi Þór í leik með Hoffenheim í fyrra. stækka

Gylfi Þór í leik með Hoffenheim í fyrra. Reuters

Markus Babbel var í morgun ráðinn nýr þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Hoffenheim og gildir samningur hans við félagið fram til 30. júní 2014. Babbel leysir Holger Stanislawski af hólmi en honum var sagt upp störfum í gær. Gylfi Þór Sigurðsson er sem kunnugt er á mála hjá Hoffenheim en leikur nú sem lánsmaður með Swansea.

Babbel er 39 ára gamall og átti farsælan feril sem knattspyrnumaður. Hann lék með þýsku liðunum Bayern München, Hamburg og Stuttgart og ensku liðunum Liverpool og Blackburn. Þá lék hann 51 leik með þýska landsliðinu.

Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá Stuttgart en hann var aðstoðarþjálfari liðsins tímabilið 2007-08 og varð síðan aðalþjálfari ári síðar. Hann tók síðan við þjálfun Herthu Berlin 2010 og stýrði liðinu upp í efstu deild en var rekinn frá félaginu í desember á síðasta ári.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is