Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 10.2.2012
| 15:33
| Uppfært
23:18
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck, nýráðinn landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, kynnti í dag tvo landsliðshópa fyrir vináttuleiki gegn Japan og Svartfjallalandi.
Hann ræddi ítarlega við fréttamenn í höfuðstöðvum KSÍ í dag og hér má sjá upphafsmínúturnar af fundinum þar sem Lagerbäck fór yfir ýmsa grunnþætti í kringum starfið. M.a. kom fram að hann hefði fengið sænskan aðstoðarmann, Roland Andersson, sem mun „njósna“ um andstæðinga íslenska liðsins og Lagerbäck sagði að hann myndi nýtast best þegar leiknir væru tveir leikir í sömu törninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






