Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 10.2.2012
| 22:05
Börsungar vissir um að Guardiola framlengi
Andoni Zubizarreta, framkvæmdastjóri spænska stórliðsins Barcelona, er þess fullviss að þjálfarinn Pep Guardiola framlengi samning sinn við félagið.
Samningur Guardiola við Börsunga rennur út eftir tímabilið en hann gerði nýjan eins árs samning í fyrra og það gerðist um þetta leyti ársins.
Guardiola, sem er 41 árs gamall, hefur gert frábæra hluti með Barcelona-liðið frá því hann tók við þjálfun þess að Frank Rijkaard árið 2008. Undir hans stjórn hafa Börsungar unnið 13 stóra titla og þar af hafa þeir þrívegis orðið spænskir meistarar og tvisvar sinnum Evrópumeistarar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






