Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir að það hafi verið erfiðara að setja saman hópinn sem spilar gegn Japan en þann sem fer til Svartfjallalands.
Heimir sagði við mbl.is að hann og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefðu náð að vinna talsvert saman undanfarið, þegar landsliðið kom saman til æfinga í janúar og á þjálfaranámskeiði KSÍ 6 í Englandi í byrjun þessa mánaðar. Svo væru samskipti auðveld í dag þegar menn væru staðsettir sinn í hvoru landinu.
Hann sagði að það hefði verið auðvelt að velja hópinn sem fer til Svartfjallalands því þangað færu þeir sem áttu ekki heimangengt í æfingahelgina í janúar og Lagerbäck væri ekki búinn að sjá. Það hefði verið meira púsluspil að setja saman hópinn fyrir ferðina til Japan, sá leikur væri ekki á alþjóðlegum leikdegi og því ekki hægt að fá alla leikmenn í hann vegna æfingaferða félagsliða þeirra.
Mbl.is spurði Heimi hvort hann gæti sinnt Eyjamönnum áfram í sinni vinnu sem tannlæknir. Hann sagði að það væri ekki vandamál, og nú hefði hann meiri tíma til þess en þegar hann þjálfaði ÍBV.






