Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 11.2.2012
| 15:44
Aron tekinn af velli á 7. mínútu
Aron Einar Gunnarsson var tekinn af velli á 7. mínútu í leik Cardiff og Leicester sem nú stendur yfir í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Staðan er 0:0 þegar þetta er skrifað en Aron Einar sem var í byrjunarliðinu varð að öllum líkindum fyrir meiðslum.
Filip Kiss leysti Aron af hólmi en leikið er á heimavelli Leicester.
Það er enginn Íslendingaslagur í viðureign Reading og Coventry sem fram fer í sömu deild. Hvorki Brynjar Björn Gunnarsson hjá Reading né Hermann Hreiðarsson hjá Coventry eru í leikmannahópum liða sinna. Hermann er úr leik í bili vegna meiðsla í öxl.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






