Breytingar á stjórn KSÍ - Gísli inn

Gísli Gíslason er mikill Skagamaður og er hér fyrir miðju á myndinni. stækka

Gísli Gíslason er mikill Skagamaður og er hér fyrir miðju á myndinni. hag / Haraldur Guðjónsson

Gísli Gíslason var í dag kjörinn í stjórn KSÍ en hann tekur sæti Jóns Gunnlaugssonar sem ekki gaf kost á sér eftir 22 ár í stjórn sambandsins. Gísli fékk næstflest atkvæði í kjörinu en auk hans voru þau Ragnhildur Skúladóttir, Lúðvík S. Georgsson og Rúnar Arnarsson kosin til áframhaldandi stjórnarsetu.

Gísli var áður bæjarstjóri Akraness og einnig formaður knattspyrnufélags ÍA.

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var kjörinn á síðasta þingi til tveggja ára og því var ekki kosið um formann að þessu sinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is