Katrín semur við Djurgården

Katrín Jónsdóttir stækka

Katrín Jónsdóttir Eggert Jóhannesson

Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, verður að öllum líkindum áfram í herbúðum Djurgården í Stokkhólmi. Samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins hefur Katrín komist að samkomulagi um að spila áfram með liðinu á næsta keppnistímabili. Hún mun að óbreyttu skrifa undir nýjan samning í næstu viku.

Katrín er á 35. aldursári og gekk í raðir Djurgården fyrir rúmi ári og var fastamaður í vörn liðsins. Samningur hennar var uppsegjanlegur að tímabilinu loknu.

Katrín er leikjahæsti A-landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 111 landsleiki. Þá er hún leikjahæsta knattspyrnukona Íslands hvað deildaleiki varðar en hún á að baki nákvæmlega 300 leiki með liðum sínum á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð.

Að minnsta kosti tveir Íslendingar verða því í herbúðum liðsins á tímabilinu en Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur varið mark þess undanfarin ár og er fyrirliði liðsins. Dóra María Lárusdóttir lék einnig með liðinu í fyrra en hefur nú róið á önnur mið í Brasilíu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is