Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 11.2.2012
| 23:22
| Uppfært
12.2.2012
18:57
Vonir Barcelona dvína enn
Victor Valdés markvörður og Gerard Piqué miðvörður Barcelona súrir í bragði eftir mark Osasuna í kvöld. AP
Vonir Barcelona um að halda spænska meistaratitlinum í knattspyrnu í Katalóníu dvínuðu enn frekar í kvöld þegar meistararnir töpuðu 3:2 fyrir Osasuna á útivelli í spænsku 1. deildinni.
Osasuna, sem er í 7. sæti deildarinnar, komst í 2:0 með tveimur mörkum frá Dejan Lekic. Alexis Sánchez minnkaði muninn fyrir Barcelona á 51. mínútu, Raúl Garcia bætti við marki fyrir heimamenn fimm mínútum síðar en Cristian Tello átti lokaorðið fyrir Börsunga á 73. mínútu.
Real Madrid er með 55 stig en Barcelona 48 og Real getur nú aukið forskotið í tíu stig annað kvöld þegar liðið fær Levante í heimsókn á Santiago Bernabéu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






