Ragnar skoraði gegn Vålerenga

Ragnar Sigurðsson, t.h., í leik með FCK. stækka

Ragnar Sigurðsson, t.h., í leik með FCK. mbl.is

Ragnar Sigurðsson skoraði eitt marka FC Köbenhavn þegar dönsku meistararnir unnu stórsigur á norska úrvalsdeildarliðinu Vålerenga, 5:0, í æfingaleik á Parken í Kaupmannahöfn í gær.

Ragnar gerði þriðja mark FCK snemma í seinni hálfleiknum en yfirburðir Dananna voru talsverðir. Ragnar lék allan leikinn og Sölvi Geir Ottesen síðasta hálftímann en Veigar Páll Gunnarsson var ekki í liði Vålerenga.

Þá skoraði Pálmi Rafn Pálmason annað marka Lilleström sem tapaði, 2:3, fyrir Hönefoss í æfingaleik norsku úrvalsdeildarliðanna í gær.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is