Sambía Afríkumeistari í fyrsta sinn

Mynd 1 af 7
Leikmenn Sambíu með spjald þar sem landsliðs þjóðarinnar sem fórst í Gabon 1993 er minnst. AP

Sambía varð í kvöld Afríkumeistari karla í knattspyrnu í fyrsta skipti með því að sigra Fílabeinsströndina, 8:7, í framlengdri vítaspyrnukeppni eftir að úrslitaleikur liðanna í Libreville í Gabon endaði 0:0.

Úrslitin réðust loksins þegar Gervinho, leikmaður Arsenal, klikkaði á sinni vítaspyrnu og Stophira Sunzu skoraði fyrir Sambíu í kjölfarið.

Didier Drogba, fyrirliði Fílabeinsstrandarinnar, fékk gullið tækifæri til að koma sínum mönnum í vænlega stöðu eftir 70 mínútur af venjulegum leiktíma. Hann tók þá vítaspyrnu en skaut yfir mark Sambíumanna.

Framganga Sambíu í keppninni var afar óvænt og sigur liðsins er ekki síst sögulegur vegna þess að í borginni Libreville, þar sem úrslitaleikurinn fór fram, fórst landslið þjóðarinnar í flugslysi árið 1993.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is