Þrenna Ronaldos og 10 stiga forysta

Cristiano Ronaldo fagnar þriðja marki sínu í kvöld. stækka

Cristiano Ronaldo fagnar þriðja marki sínu í kvöld. Reuters

Real Madrid náði í kvöld tíu stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu með því að sigra Levante, 4:2, á Santiago Bernabéu. Real nýtti þar með vel ósigur Barcelona í gærkvöld en meistararnir töpuðu þá fyrir Osasuna, 3:2.

Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í kvöld og Karim Benzema gerði eitt mark fyrir Real Madrid. Levante komst þó yfir á 5. mínútu leiksins þegar Gustavo Cabras skoraði. Gestirnir misstu Vicente Iborra af velli með rautt spjald á 43. mínútu og Ronaldo jafnaði í kjölfarið úr vítaspyrnu, 1:1 í hálfleik.

Eftir tvö mörk til viðbótar frá Ronaldo á fyrstu 12 mínútum seinni hálfleiks svaraði Arouna Koné fyrir Levante, 3:2, en Ronaldo lagði upp fjórða mark Real fyrir Benzema á 66. mínútu.

Real Madrid er nú með 58 stig á toppnum, Barcelona 48, Valencia 40, Levante 32 og Espanyol 32 stig en leiknar hafa verið 22 umferðir af 38.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is