Neita því ekki að ég hitti knöttinn vel

Emil Hallfreðsson. stækka

Emil Hallfreðsson. www.hellasverona.it

„Voru þetta ekki einir 34 metrar?“ sagði Emil Hallfreðsson, leikmaður Verona í ítölsku B-deildinni, en hann skoraði glæsilegt mark og lagði upp annað þegar liðið vann Ascoli 2:0 um helgina.

Markið skoraði Emil með föstu skoti af um 34 metra færi, aðeins vinstra megin á miðjunni, og sendi knöttinn efst í hægra markhornið. „Ég neita því ekki að ég hitti knöttinn mjög vel. Svo var ég líka mjög ánægður með síðara markið sem ég lagði upp, það kom úr snaggaralegri og góðri skyndisókn,“ sagði Emil, en lið hans er nú í þriðja sæti B-deildarinnar og ætlar sér upp í efstu deild.

Glæsimark Emils gegn Ascoli (myndskeið).

Nánar er rætt við Emil í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is