Rangers á leið í greiðslustöðvun

Leikmenn Rangers fagna marki. stækka

Leikmenn Rangers fagna marki. Reuters

Skoska knattspyrnustórveldið Rangers er á leið í greiðslustöðvun að öllu óbreyttu, og verður þá í framhaldi af því svipt 10 stigum í skosku úrvalsdeildinni.

Rangers, sem varð skoskur meistari í 54. skipti og þriðja árið í röð síðasta vor, skilaði inn tilskildum gögnum til dómstóls í Edinborg í dag, þar sem fram kom að félagið stefndi að því að fara í greiðslustöðvun. Þar með hefur Rangers nú fimm daga frest til að taka endanlega ákvörðun um hvort félagið fari í þá meðferð.

Rangers bíður eftir niðurstöðu í dómsmáli vegna ógreiddra skatta sem geta með áföllnum kostnaði numið tæpum 50 milljónum punda.

Ef greiðslustöðvuninni verður framfylgt verða 10 stig dregin af liðinu. Þar með má segja að Celtic yrði afhentur meistaratitillinn á silfurfati. Þegar 26 umferðir hafa verið leiknar af 38 er Celtic með 65 stig á toppnum og Rangers er með 61 stig en Motherwell er í þriðja sætinu með 42 stig. Bilið á milli Celtic og Rangers yrði 14 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is