Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 13.2.2012
| 11:46
| Uppfært
14.2.2012
20:13
Rekinn eftir 43 daga í starfi
Michael Skibbe þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Hertha Berlin var rekinn frá störfum í gær eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins fimm leikjum og í 43 daga. Berlínarliðið steinlá fyrir Stuttgart, 5:0, og það var kornið sem fyllti mælinn hjá stjórnendum liðsins.
Hertha Berlin tapaði öllum fimm leikjunum undir stjórn Skibbe sem tók við starfi Markusar Babbel í vetrarhléinu en Babbel var þá látinn taka pokann sinn. Hann er hins vegar kominn í nýtt starf því hann var ráðinn til Hoffenheim í síðustu viku.
Skibbe er sjötti þjálfarinn sem er rekinn frá liði í þýsku Bundesligunni á þessu tímabili en Hertha Berlin er í 15. sæti af 18 liðum í deildinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






