Frá keppni í ár eftir slys í Boganum
Úr Boganum á Akureyri - Bergvin lenti á stálbita eins og sjást fyrir aftan markið. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Bergvin Jóhannsson, 17 ára knattspyrnumaður úr Þór á Akureyri, leikur ekki meira á þessu tímabili eftir að hafa slasast illa á fæti í leik gegn KA í Norðurlandsmótinu í knattspyrnuhúsinu Boganum á sunnudaginn. Um þetta hefur verið fjallað á vefmiðlinum vikudagur.is.
Í lýsingu Vikudags segir að Bergvin hafi verið á fleygiferð við endalínu þar sem hann reyndi að teygja sig í boltann og gefa fyrir markið, en lenti út fyrir völlinn, rann yfir malbikaðan kafla á hálum takkaskónum og skall á stálbita í grind hússins.
Hnéskelin fór í tvennt og Bergvin gekkst undir aðgerð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær þar sem hún var skrúfuð saman. Samkvæmt því sem hann segir við Vikudag er reiknað með að hann verði allt að eitt ár að ná sér að fullu.
Bergvin lék fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands á síðasta ári og var kominn inn í meistaraflokkshóp Þórs í vetur. Umræddur leikur var á milli B-liða Þórs og KA í meistaraflokki.
Sigfús Helgason, formaður Þórs, sagði við Vikudag að um algjört slys hefði verið að ræða. Strax í gær voru stálbitarnir umræddu klæddir svampi til að forða því að atvik eins og þetta endurtaki sig.






