Íþróttir
|
Fótbolti
| Morgunblaðið
| 14.2.2012
| 5:57
| Uppfært
8:23
Hannes sá fyrsti í Kasakstan?
Kasakstan gæti orðið næsti viðkomustaður knattspyrnumannsins Hannesar Þ. Sigurðssonar en lið Aktobe, sem sló FH-inga út í Meistaradeildinni árið 2009, fékk Hannes til skoðunar í æfingaferð liðsins í Tyrklandi á dögunum.
Hannes æfði með Aktobe-liðinu í nokkra daga og tók þátt í einum æfingaleik með því og skoraði eitt mark. Hannes kom til landsins fyrir helgi og bíður nú eftir að heyra frá forráðamönnum liðsins.
Bíð eftir framhaldinu
,,Það gekk vel hjá mér í alla staði og nú bíð ég bara eftir að fá að heyra frá liðinu hvert framhaldið verður. Mér leist vel á liðið og ég útiloka ekki að fara til þess en það eru fleiri möguleikar í stöðunni,“ sagði Hannes í samtali við Morgunblaðið í gær.
Nánar um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






