Öruggt hjá Barcelona í Þýskalandi

Lionel Messi skoraði sitt 44. mark í Meistaradeildinni í Þýskalandi í kvöld. stækka

Lionel Messi skoraði sitt 44. mark í Meistaradeildinni í Þýskalandi í kvöld. Reuters

Evrópumeistarar Barcelona unnu öruggan 3:1 sigur á Bayer Leverkusen í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld og standa þar með vel að vígi fyrir síðari leikinn í Katalóníu.

Leikmenn Leverkusen vörðust lengi vel afar fimlega í leiknum í kvöld og það var ekki fyrr en á 41. mínútu að Alexis Sánchez náði að brjóta á bak aftur vörn þýska liðsins eftir að hafa stungið sér inn fyrir hana á eftir sendingu frá Lionel Messi.

Síðari hálfleikur hófst fjörlega og var í heild skemmtilegri en sá fyrri. Tékkinn Michal Kadlec jafnaði leikinn á 52. mínútu við mikla gleði heimamanna. Adam var ekki lengi í Paradís því aðeins þremur mínútum síðar skoraði Sánchez annað mark Barcelona eftir að hafa fengið góða sendingu frá Cesc Fábregas.

Eftir þetta átti Barcelona mun meira í leiknum og aðeins var tímaspursmál hvenær þriðja mark liðsins væri skorað. Messi tókst það á 89. mínútu eftir laglegan samleik. Þetta var hans 19. mark í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og um leið 44. mark hans í öllum leikjum deildarinnar.

Í hinum leik kvöldsins vann Lyon Apoel, 1:0, á Stade de Gerland í Lyon. Alexandre Lacazette skoraði eina markið á 58. mínútu en heimamenn voru í linnulítilli sókn allan leikinn en uppskáru aðeins eitt mark.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is