Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 15.2.2012
| 19:55
| Uppfært
22:58
Benfica tapaði í Pétursborg
Rússarnir í Zenit St. Pétursborg lögðu Benfica frá Portúgal að velli, 3:2, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar liðin mættust í Pétursborg í kvöld.
Maximiliano Pereira kom Benfica yfir á 20. mínútu en Roman Shirokov jafnaði fyrir Zenit sjö mínútum síðar. Sergeu Semak náði svo forystunni fyrir Rússana á 71. mínútu en Óscar Cardoso jafnaði fyrir Benfica þremur mínútum fyrir leikslok.
Það var síðan Shirakov sem skoraði sigurmark Zenit mínútu síðar, 3:2, sitt annað mark í leiknum.
Liðin mætast aftur í Portúgal eftir þrjár vikur og Benfica er í ágætri stöðu þrátt fyrir tapið, þar sem liðið skoraði tvívegis á útivelli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






