Eyjólfur orðaður við Herthu Berlín
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, er orðaður við stöðu þjálfara hjá sínu gamla félagi, Herthu Berlín í Þýskalandi, í grein í netútgáfu Bild þar sem fjallað er um hver gæti tekið við af Michael Skibbe sem var sagt upp starfinu um helgina.
Bild segir að tveir fyrrverandi þjálfarar Hoffenheim, þeir Holger Stanislawski og Ralf Rangnick, séu þegar búnir að hafna því að taka við Berlínarliðinu.
Thomas Doll, Krassimir Balakov og Franco Foda eru nefndir til sögunnar sem líklegir kandídatar og þá eru Peter Hyballa og Eyjólfur Sverrisson sagðir hafa borið á góma í umræðunni um nýjan þjálfara liðsins.
Eyjólfur lék með Herthu Berlín frá 1995 til 2003 og áður með Stuttgart. Hann var aðstoðarþjálfari hjá Wolfsburg í nokkrar vikur síðasta vetur.
Hertha Berlín leikur á ný í 1. deildinni í Þýskalandi, þeirri efstu, en liðið komst aftur upp síðasta vor eftir eins árs fjarveru. Liðið er í mikilli fallhættu en það er í 15. sæti af 18 liðum, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.






