Ísland í 103. sæti á FIFA-listanum

Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari. stækka

Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er í 103. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem gefinn var út í morgun. Ísland hefur hækkað um eitt sæti frá því síðasti listi kom út. Af Evrópuþjóðum eru Íslendingar í 43. sæti.

Íslendingar hafa ekkert spilað á árinu en fyrstu leikir landsliðsins undir stjórn Svíans verða síðar í mánuðinum en þá verður leikið á móti Japönum og Svartfellingum ytra.

Efstu tíu þjóðirnar á listanum eru: Spánn, Þýskaland, Holland, Úrúgvæ, Portúgal, Brasilía, Ítalía, Króatía og Danmörk sem er í 10. sætinu.

Sambíumenn, nýkrýndir Afríkumeistarar, fara upp um heil 28 sæti og eru í 43. sæti á styrkleikalistanum og í fyrsta sinn í 11 ár komast þeir á topp 50 á listanum.

FIFA-listinn í heild sinni

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is