Messi heldur áfram að bæta metin
Argentínski snillingurinn Lioel Messi hjá Barcelona heldur áfram að bæta metin en með marki sínu gegn Bayer Leverkusen í gær er hann orðinn markahæsti leikmaður í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar frá upphafi.
Messi hefur skorað 19 mörk í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, einu marki meira en Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko og Spánverjinn Raúl.
Messi hefur skorað í sjö útileikjum í röð í Meistaradeildinni sem er met en Ítalinn Filippo Inzaghi náði að skora í sex útileikjum í röð með AC Milan og síðan Juventus á árunum 2000 til 2002.
Messi hefur skorað 38 mörk í öllum keppnum með Barcelona á leiktíðinni og stoðsendingarnar eru 21 talsins. Hann hefur komið að 48% marka Börsunga á leiktíðinni.
Messi er markahæstur í Meistaradeildinni á þessu tímabili með sjö mörk en þrjú síðustu árin hefur hann orðið markakóngur Meistaradeildarinnar.






