Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 16.2.2012
| 18:32
| Uppfært
21:07
Aron og Steinþór skoruðu (myndskeið)
Aron Jóhannsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson voru báðir á skotskónum í æfingaleikjum með liðum sínum í dag, AGF frá Danmörku og Sandnes Ulf frá Noregi.
Aron skoraði fyrsta mark AGF sem vann norska úrvalsdeildarliðið Haugesund, 3:1, í Tyrklandi en þar dvelja liðin í æfingabúðum. Andrés Már Jóhannesson lék ekki með Haugesund.
Steinþór Freyr skoraði fyrsta mark Sandnes Ulf, nýliðanna í norsku úrvalsdeildinni, sem unnu 2. deildar liðið Vidar, 3:2, á gervigrasvelli sínum í Sandnes.
Myndskeið af leik Sandnes og Vidar má sjá á meðfylgjandi slóð og Steinþór sést skora með hörkuskoti í byrjun þess:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






