Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 16.2.2012
| 19:53
Jóhann og félagar með forskot
Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar hans í AZ Alkmaar sigruðu Anderlecht frá Belgíu, 1:0, í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í Alkmaar í kvöld.
Adam Maher skoraði sigurmark Hollendinganna á 35. mínútu. Jóhann kom inn á sem varamaður á 78. mínútu og fékk gula spjaldið fyrir brot á 89. mínútu.
Þessum leikjum er lokið í kvöld:
Lokomotiv Moskva - Athletic Bilbao 2:1
Ajax - Manchester United 0:2
AZ Alkmaar - Anderlecht 1:0
Lazio - Atlético Madrid 1:3
Legia Varsjá - Sporting Lissabon 2:2
Salzburg - Metalist Kharkiv 0:4
Viktoria Plzen - Schalke 1:1
Sjö leikir hefjast síðan klukkan 20.05. Þar er Birkir Bjarnason á meðal varamanna Standard Liege frá Belgíu sem sækir heim pólska liðið Wisla Kraków.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






