Rifust um treyjuna hjá Messi

Lionel Messi. stækka

Lionel Messi. AP

Rudi Völler yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska knattspyrnuliðinu Bayer Leverkusen er ekki ánægður með framkomu tveggja leikmanna liðsins en þeir Michal Kadlec og Manuel Friedrich rifust um það hver ætti að eiga treyju Lionel Messi eftir leik Leverkusen og Barcelona í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.

,,Ég skal ábyrgjast að þeir Kadle og Friedrich munu bjóða upp treyju Messi og rennur ágóðinn til góðs málefnis,“ sagði Völler við þýska blaðið Bild. ,,Það sem þeir gerðu fór yfir strikið,“ sagði Völler, sem var ekki skemmt yfir framgangi leikmanna sinna.

Í hálfleik í viðureign Leverkusen og Barcelona spurði Kadlec Messi um að skiptast á treyjum eftir leikinn. Þegar dómarinn flautaði leikinn af gekk hins vegar Friedrich að Messi og fékk treyjuna.

,,90% af leikmönnum voru með einbeitingu á leikinn. Það sem þessir tveir leikmenn gerðu gekk of langt. Ég hef ekki rætt við þá en við munum gera það,“ sagði Völler.




  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is