Viss um að ég kem sterkur til baka

Kolbeinn Sigþórsson. stækka

Kolbeinn Sigþórsson. www.ajax.nl

„Ég er byrjaður að æfa með bolta úti á velli og þetta er allt saman á réttri leið. Ef þetta gengur eins og þetta er búið að ganga síðustu vikurnar geri ég mér vonir um að ná einhverjum leikjum áður en tímabilinu lýkur. Hversu margir verður að koma í ljós en fyrst og fremst ætla ég að einbeita mér að því að verða 100% klár þegar næsta tímabil hefst,“ sagði landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax, við Morgunblaðið í gær.

Kolbeinn hefur verið frá keppni síðan í október en þá greindist hann með álagsbrot í ökklanum og þurfti að fara í aðgerð. Fram að því hafði hann staðið sig frábærlega með Ajax-liðinu, sem hann gekk til liðs við frá AZ Alkmaar í sumar. Kolbeinn skoraði fimm mörk í þeim átta leikjum sem hann spilaði áður en hann varð fyrir meiðslunum og er enn á meðal markahæstu leikmanna liðsins.

Nánar er rætt við Kolbein í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is