Ari skoraði fyrir Sundsvall

Ari Freyr Skúlason. stækka

Ari Freyr Skúlason. www.gifsundsvall.se

Ari Freyr Skúlason skoraði fyrsta mark sænska liðsins Sundsvall í dag þegar það sigraði Djurgården, 3:2, í Stokkhólmi en bæði liðin leika í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á komandi tímabili.

Ari og félagar komu upp úr B-deildinni og hafa átt góðu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu en þetta var þeirra fjórði sigur í jafnmörgum leikjum.

Ari, sem er að hefja sitt fimmta tímabil með Sundsvall, er í íslenska landsliðshópnum sem fer til Japans í næstu viku og mætir heimamönnum í Osaka á föstudaginn kemur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is