Aron er fullur sjálfstrausts

Aron Jóhannsson í leik með 21-árs landsliðinu gegn Belgum í haust. stækka

Aron Jóhannsson í leik með 21-árs landsliðinu gegn Belgum í haust. mbl.is/Kristinn

Aron Jóhannsson, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið á skotskónum með danska úrvalsdeildarliðinu AGF í æfingaleikjum þess að undanförnu.

Eins og fram kom á mbl.is í gær skoraði Aron fyrsta mark AGF í sigri á norska úrvalsdeildarliðinu Haugesund, 3:1, í Tyrklandi í gær. Hann hefur þar með skorað í öllum þremur leikjum Árósaliðsins á undirbúningstímabilinu. Þetta er stórt skref fyrir Aron sem lék alla 18 leiki AGF í dönsku úrvalsdeildinni fyrir áramótin, 12 þeirra í byrjunarliðinu, en náði aðeins að skora eitt mark.

Staðarblaðið Århus Stiftstidende  fjallar um Aron í dag og ræðir við hann. Sagt er að Aron geisli af sjálfstrausti þessa dagana eftir basl framan af vetri.

„Þetta gengur bara vel. Ég er farinn að skora mörk og finnst ég jafnframt leggja mitt af mörkum úti á vellinum. Þetta er frábært, getur ekki  verið mikið  betra. Auðvitað er þetta geysilega  gott fyrir sjálfstraustið. Hvort þetta dugir til að vera í byrjunarliðinu þegar deildin fer aftur í gang er erfitt að segja til um. Það er undir þjálfaranum komið. En ég vil allavega  gera allt sem ég get til þess að hann eigi erfitt með að halda mér fyrir utan liðið þegar þar að kemur,“ segir Aron við blaðið.

Hann og 18 ára gamall Georgíumaður, Davit Skhirtladze, hafa náð vel saman í framlínu liðsins í æfingaleikjunum og nýtt sér það vel að fjórir keppinautar þeirra eru frá vegna meiðsla sem stendur.

„Við náum vel saman og höfum verið fljótir að koma á fínni samvinnu. Það lofar góðu, ef þetta myndi þróast þannig að við yrðum í byrjunarliðinu þegar við mætum Nordsjælland í fyrsta leiknum eftir fríið. En við bíðum og sjáum til,“ segir Aron ennfremur.

Hann er 21 árs gamall og kom til AGF frá Fjölni haustið 2010. Þá tók hann þátt í að vinna 1. deildina með liðinu og í vetur hefur liðið staðið sig vel í úrvalsdeildinni en þar er það í 5. sæti eftir 18 umferðir, 10 stigum á eftir toppliði FC Köbenhavn.

Keppnin í Danmörku hefst á ný 3. mars og AGF á þá heimaleik gegn Nordsjælland sem er í öðru sæti deildarinnar. Aron á hinsvegar langt ferðalag fyrir höndum í vikunni á undan því hann er í íslenska 21-árs landsliðinu sem spilar í Aserbaídsjan 29. febrúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is