Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 23:29
Fjölnir og Leiknir skildu jöfn
Fjölnir og Leiknir R. gerðu í kvöld jafntefli, 1:1, í 3. riðli deildabikars karla í fótbolta, Lengjubikarsins, í Egilshöllinni.
Illugi Þór Gunnarsson kom Fjölni yfir á 52. mínútu en Óttar Bjarni Guðmundsson jafnaði fyrir Leiknismenn á 86. mínútu.
Báðir leikir kvöldsins enduðu því með jafntefli en Valur og Fylkir skildu jöfn, 2:2, í þeim fyrri eins og áður hefur komið fram.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






