Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 10:14
Hiddink tekur við Anzhi Makhachkala
Hollendingurinn Guus Hiddink hefur náð samkomulagi við hina nýríku eigendur rússneska knattspyrnuliðsins Anzhi Makhachkala um að taka við þjálfun liðsins.
Hiddink hefur samþykkt að gera 18 mánaða samning við rússneska liðið sem ákvað að segja þjálfara sínum upp í síðustu viku.
Hiddink var á lausu en hann hætti sem landsliðsþjálfari Tyrklands í nóvember þegar ljóst var að Tyrkir kæmust ekki í úrslitakeppni Evrópumótsins.
Hiddink, sem er 65 ára gamall, er þrautreyndur þjálfari. Félagsliðin sem hann hefur þjálfað eru meðal annars PSV Eindhoven, Valencia, Real Madrid og Chelsea og þá hefur hann stýrt landsliðum Hollands, Suður-Kóreu, Ástralíu, Rússlands og Tyrklands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






