Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 17.2.2012
| 22:47
| Uppfært
23:32
Inter steinlá á heimavelli
Claudio Ranieri þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Inter er orðinn verulega valtur í sessi eftir háðuglegt 3:0 tap liðsins á heimavelli gegn Bologna í kvöld.
Stuðningsmenn Inter púuðu hressilega á leikmenn liðsins þegar þeir gengu af velli en Inter hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum og í þeim hefur liðið aðeins skorað 4 mörk en fengið á sig 15.
Inter er nú í sjötta sæti deildarinnar og vonir liðsins um að ná sæti í Meistaradeildinni fara dvínandi. Þrátt fyrir góðan sigur situr Bologna í 16. sæti deildarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






