Þjálfari Start ræddi við Ólaf Örn um Matthías

Matthías Vilhjálmsson í baráttu við Framarann Samuel Tillen. stækka

Matthías Vilhjálmsson í baráttu við Framarann Samuel Tillen. mbl.is/Árni Sæberg

Mons Ivar Mjelde þjálfari norska B-deildarliðsins Start segist hafa rætt við Ólaf Örn Bjarnason og fengið álit hans á Matthíasi Vilhjálmssyni en Matthías gekk í dag í raðir Start. Ólafur Örn lék undir stjórn Mjelde hjá Brann eins og fleiri íslenskir knattspyrnumenn.

Mjelde ætlar að nota Matthías í stöðu framherja en hann hefur spilað þá stöðu með FH en hefur þó mest spilað sem framliggjandi miðjumaður en hefur spilað sem kantmaður.

,,Hann er fjölhæfur framherji, er sterkur, góður að klára færin og er yfirvegaður leikmaður sem hefur verið fyrirliði FH í íslensku deildinni. Ég hef rætt við Ólaf Bjarnason um Matthías og hann gaf honum mjög gott orð,“ sagði Mjelde við fréttamenn í dag þegar Matthías var kynntur til sögunnar hjá Start.

Matthías spilar sinn fyrsta leik með Start á morgun en þá mætir liðið Bryne í æfingaleik í Sørlandshallen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is