Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 22:35
| Uppfært
23:57
Arnar fékk rauða spjaldið
Arnar Þór Viðarsson, miðjumaður Cercle Brugge, fékk rauða spjaldið í uppbótartíma þegar lið hans vann góðan útisigur á OH Leuven, 3:2, í belgísku knattspyrnunni í kvöld.
Arnar fékk þar sitt annað gula spjald og var því vísað af velli, rétt áður en dómarinn flautaði til leiksloka. Hann missir því af þriðja leik sínum á tímabilinu en Arnar hefur leikið 24 af 26 leikjum Cercle í vetur, alla í byrjunarliði og flestalla í 90 mínútur. Cercle Brugge er í 5. sætii deildarinnar, stigi á eftir Standard Liege.
Stefán Gíslason lék allan leikinn með OH Leuven sem er í 13. sæti af 16 liðum deildarinnar, sjö stigum fyrir ofan fallsæti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






