Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 18:05
Matthías skoraði í sínum fyrsta leik með Start
Matthías Vilhjálmsson var ekki lengi að stimpla sig inn með norska knattspyrnuliðinu Start sem hann gekk til liðs við frá FH í gær. Matthías skoraði eitt mark og átti stóran þátt í tveimur öðrum þegar Start hafði betur gegn Bryne, 4:3.
Matthías lék í fremstu víglínu og lék fyrstu 78 mínútur en hann fór þá af velli eftir að Start hafði misst mann af velli með rautt spjald. Matthías lét mikið að sér kveða en auk þess að skora og eiga þátt í tveimur mörkum sinna manna átti hann skalla í þverslánna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






