Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 18.2.2012
| 22:04
Real Madrid með 13 stiga forskot
Real Madrid náði í kvöld 13 stiga forskoti á toppi spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu þegar liðið burstaði Racing Santander, 4:0, á heimavelli sínum.
Karim Benzema skoraði tvö af mörkum Madridarliðsins og þeir Cristiano Ronaldo og Angel Di Maria skoruðu sitt markið hver. Gestirnir léku manni færri í 50 mínútur en Domingo Cisma fékk að líta rauða spjaldið á 39. mínútu leiksins.
Barcelona og Valencia mætast í uppgjöri liðanna í öðru og þriðja sæti annað kvöld. Real Madrid er með 61 stig, Barcelona 48 og Valencia 40 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






