Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 19.2.2012
| 13:34
| Uppfært
13:49
Halldór Orri í stað Elmars til Japan
Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður Randers í Danmörku, hefur dregið sig út úr landsliðshópnum í knattspyrnu fyrir vináttuleikinn gegn Japan næsta föstudag.
Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari staðfesti þetta við mbl.is og sagði að Elmar hefði meiðst í æfingaleik með Randers um helgina.
Í staðinn hefur Halldór Orri Björnsson úr Stjörnunni verið valinn í landsliðshópinn og hann á því möguleika á að spila sinn fyrsta A-landsleik í Osaka.
Íslenska liðið heldur til Japans á þriðjudagsmorguninn og kemur á áfangastað á miðvikudagsmorgni, rúmum tveimur sólarhringum fyrir leik.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






