Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 19.2.2012
| 23:17
Messi með fernu gegn Valencia (myndband)
Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu auk þess að leggja upp lokamarkið fyrir Xavi í 5:1 sigri Barcelona á Valencia í spænsku 1. deildinni í kvöld.
Valencia komst yfir í leiknum en það dugði skammt gegn Messi og félögum sem eru nú ellefu stigum á undan Valencia í 2. sæti deildarinnar. Real Madrid er hins vegar á toppnum með tíu stiga forskot.
Myndband af mörkunum úr leiknum má sjá hér að neðan:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






