Fjórar komast ekki til Algarve
Edda Garðarsdóttir spilar ekki á Algarve og þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir verða notaðar sparlega, samkvæmt ósk félaga þeirra. mbl.is/Algarvephotopress
Fjórar knattspyrnukonur sem léku með íslenska landsliðinu á síðasta ári geta ekki spilað með því í Algarve-bikarnum sem hefst í Portúgal í næstu viku. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari tilkynnir 20 manna hóp sinn fyrir keppnina í dag.
Í honum verða ekki þær Edda Garðarsdóttir hjá Örebro, sem er rétt að ná sér af hnjámeiðslum sem hún varð fyrir síðasta haust, og Valskonurnar Laufey Ólafsdóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir og Dagný Brynjarsdóttir. Dagný og Laufey hafa glímt við meiðsli í allan vetur og eru ekki leikfærar og Málfríður er í barneignafríi og spilar því ekki með Val eða landsliðinu á árinu.
Þá hafa þýsku meistararnir Potsdam og sænsku meistararnir Malmö óskað eftir því að Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir verði notaðar sparlega í fjórum leikjum íslenska landsliðsins í Algarve-bikarnum. Þær eiga báðar stíft prógramm framundan með liðum sínum, sem eru í 8-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna.






