Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 20.2.2012
| 18:30
Ingólfur skoraði gegn CSKA
Ingólfur Sigurðsson, knattspyrnumaðurinn ungi sem gekk til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Lyngby fyrir skömmu, skoraði í dag sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Lyngby vann þá sigur, 3:2, á 21-árs liði rússneska félagsins CSKA Moskva en liðin mættust í Antalya í Tyrklandi þar sem þau dvelja í æfingabúðum.
Ingólfur, sem varð 19 ára fyrr í þessum mánuði og spilaði 12 leiki með Val í úrvalsdeildinni síðasta sumar, lék allan leikinn með Lyngby og kom liðinu í 3:1 á 78. mínútu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






