Ronaldo og Messi í sérflokki

Ronaldo og Messi í baráttu um boltann. stækka

Ronaldo og Messi í baráttu um boltann. Reuters

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi berjast hart um markakóngstitilinn á Spáni en þessir miklu snillingar hafa farið á kostum með liðum sínum í vetur og eru í sérflokki.

Ronaldo skoraði eitt af fjórum mörkum Real Madrid í 4:0-sigri gegn Racing Santander. Portúgalinn hefur þar með skorað 121 mark í 123 leikjum með Madridarliðinu og er orðinn 13. markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi. Hann hefur skorað samtals 39 mörk fyrir Real Madrid í öllum keppnum á tímabilinu.

Messi gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í 5:1-sigri Barcelona gegn Valencia í gærkvöldi. Argentínski töframaðurinn hefur þar með skorað 146 mörk fyrir Katalóníuliðið en leikurinn í gær var hans 200. í búningi liðsins. Messi hefur skorað 42 mörk í öllum keppnum með Barcelona á tímabilinu.

Markahæstu leikmenn í spænsku 1. deildinni:

28 Cristiano Ronaldo, Real Madrid
27 Lionel Messi, Barceona
14 Gonzalo Higuain, Real Madrid
14 Falcao, Atletico Madrid
13 Karim Benzema, Real Madrid
12 Roberto Soldado, Valencia
12 Fernando Llorente, Bilbao

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is