Sigurður: Frábær undirbúningur

Sigurður Ragnar Eyjólfsson er á leið með kvennalandsliðið í Algarve-bikarinn í Portúgal, sjötta árið í röð, og segir að mótið sé frábær undirbúningur fyrir liðið á allan hátt.

Þar gefist meðal annars tækifæri til að gefa leikmönnum reynslu á móti mörgum af sterkustu liðum heims, og góðir árangur gegn þeim hafi skilað sér í auknu sjálfstrausti í landsliðshópnum.

Ísland sló í gegn á mótinu í fyrra með því að sigra Svía og Dani í fyrsta sinn og lék til úrslita gegn Bandaríkjunum. Sigurður sagði að sem fyrr yrði spilað til sigurs í öllum leikjum. Við höfum aldrei unnið Þýskalandi og við eigum þær í fyrsta leik, sagði Sigurður brosandi en Ísland mætir firnasterku liði Þjóðverja í fyrsta leiknum 29. febrúar.

Þá er mótið mikilvægt til undirbúnings fyrir stórleikinn gegn Belgíu í undankeppni EM sem fram fer í Belgíu 4. apríl.

Hópurinn sem fer til Portúgals.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is