Elmar með slitið krossband

Theódór Elmar Bjarnason, fyrir miðju, í landsliðsbúningi Íslands. stækka

Theódór Elmar Bjarnason, fyrir miðju, í landsliðsbúningi Íslands. mbl.is/Golli

Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður danska knattspyrnuliðsins Randers, sleit krossband í hné í æfingaleik á laugardaginn og verður frá keppni langt frameftir þessu ári.

Elmar sagði við mbl.is að hann hefði fengið högg á hnéð í leiknum sem var við OB, lið Rúriks Gíslasonar, í Óðinsvéum. Takkarnir á skónum hefðu fest fótinn í grasinu með þessum afleiðingum.

„Þetta tekur 6-8 mánuði og er að sjálfsögðu gífurlega svekkjandi þar sem ég er nýkominn til félagsins, en það er ekkert annað að gera en að vinna vel í þessu og koma sterkur til leiks næsta haust,“ sagði Elmar við mbl.is.

Hann kom til liðs við Randers frá IFK Gautaborg í Svíþjóð í síðasta mánuði. Elmar átti að fara með landsliðinu til Japan í dag en varð að sjálfsögðu að draga sig út úr hópnum þegar meiðslin lágu fyrir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is