Real Madrid varð að sætta sig við jafntefli

Cristiano Ronaldo í baráttunni í Moskvu í kvöld. stækka

Cristiano Ronaldo í baráttunni í Moskvu í kvöld. AP

Nífaldir Evrópumeistarar Real Madrid og rússneska liðið CSKA Moskva gerðu 1:1-jafntefli í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikið var á gervigrasi í frostinu í Moskvu í kvöld.

Hver annar en Cristiano Ronaldo skoraði mark Real Madrid en hann kom sínum mönnum yfir á 28. mínútu með sínu 35. marki á leiktíðinni. Það stefndi allt í sigur Madridarliðsins en þegar 20 sekúndur voru eftir af uppbótartíma jafnaði Svíinn Pontus Wernbloom fyrir Rússana með skoti af stuttu færi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is